Havarí hlaðvarp: Lífræn ræktun getur ráðið úrslitum

Kristján Oddsson, bóndi að Neðra Hálsi í Kjós, er viðmælandi Berglindar Häsler í öðrum þætti af Hlaðvarpi Havarí á Hlöðunni, hlaðvarpi Bændablaðsins.

Kristján er frumkvöðull í lífrænni ræktun á Íslandi og einn eiganda fyrirtækisins Bióbú sem sérhæfir sig í vinnslu á lífrænum mjólkurafurðum. Kristján og kona hans, Dóra Ruf, stofnuðu fyrirtækið árið 2003.

Í þættinum segir Kristján lífræna ræktun geti skipað stóran sess í baráttunni við loftlagsvána. Vandinn hér á landi sé hins vegar sá að enn sé glímt við ákveðna fordóma í garð lífrænnar ræktunar og að skortur á sveigjanleika hjá eftirlitsaðilum og í regluverkinu sjálfu fæli bændur frá eða verði til þess að þeir missi móðinn. Að mati Kristjáns er mikilvægt að líta á lífræna ræktun sem þróunarverkefni, sér í lagi á meðan hún er að festa sig í sessi.

Hlaðvarp Havarí – samtal um lífræna ræktun og framleiðslu er unnið í samvinnu við VOR hagsmunafélag framleiðenda sem stunda lífræna ræktun eða fullvinnslu lífrænna, íslenskra afurða.

Samtal Berglindar og Kristjáns má nálgast á öllum helstu hlaðvarpsveitum og í spilaranum hér að neðan: