Fréttir

Ný vara frá Biobú

Biobú hefur hafið framleiðslu og dreifingu á hindberja jógúrt. Hún er einstaklega ljúffeng og er líkleg til vinsælda. Þessi nýja jógúrt er kærkomin viðbót fyrir unnendur lífrænnar jógúrtar frá Biobú því all langt er síðan ný tegund kom síðast á markað.

Fréttir

Betra skyr

Nú hvetjum við alla til að smakka endurbætta gerð Biobú-skyrsins. Mangó, Vanillu eða Hreint. Okkur þykir áferðin betri og skyrið er þykkara. Sumir taka ekki annað í mál en að borða það með góðum rjóma. En aðalatriðið er að okkur þykir skyrið betra nú en áður. Skorum á ykkur að prófa.

Fréttir

OFURFÆÐA!

Grísk jógúrt, vara sem er stútfull af góðri fitu og próteini. Morgunmatur: Grísk jógúrt + múslí + skvetta af agave Eftirréttur: Grísk jógúrt + kakó + agave + chia fræ Köld sósa: Grísk jógúrt + handfylli rifinn gúrka + 2 hvítlauksrif + salt og pipar

Fréttir

Breytt fóðrun á lífrænum mjólkurkúm

Vegna minni og lélegri heyja hjá bændum sem framleiða lífrænu mjólkina, hafa þeir þurft að grípa til notkunar á fiskiméli og lífrænu korni til viðbótar við grasfóðrun. Fiskimjölið og kornið eru notað til að dreifa yfir léleg hey til að auka lystugleika, og til að bæta upp léleg hey, en eins og vitað er að […]

Fréttir

Mjólkurdreifing – uppfært

Að gefnu tilefni skal reynt að gera neytendum betur grein fyrir hvernig Biobú stendur að dreifingu á lífrænu mjólkinni svo auðveldara sé að nálgast mjólkina í þínu hverfi. Öðrum vörum Biobú er dreift um leið og mjólkinni, s.s. rjóma, jógúrt, skyri og skyrdrykkjum. Rétt er að benda á að um takmarkað magn er að ræða af mjólk í hverri […]