Ostaformin hönnuð úr Set vatnsrörum

Þeir bræður, Helgi og Sverrir, í framleiðslurými Bio-bú með Set vatnsröra-ostaformin.

Mjólkurvöruframleiðandinn Bio-bú, sem framleiðir mjólkurvörur úr lífrænni mjólk, notar vatnsrör frá röraverksmiðjunni Set á Selfossi til þess að framleiða form fyrir ostaframleiðsluna.

Selfyssingarnir og bræðurnir Helgi Rafn og Sverrir Örn Gunnarssynir starfa báðir hjá Bio-bú, en Sverrir vann fjögur sumur hjá Set þegar hann var yngri. Sverrir segir að þegar hann hóf sjálfur að framleiða osta hafi hann hvergi fundið hringlaga form sem hentuðu.

Þá voru góð ráð dýr og því ákvað hann spyrja sérfræðing í framleiðslu osta hvort þeir gætu hannað og framleitt þessi ostaform sjálfir. Sérfræðingurinn sagði það vera lítið mál og eftir að reynslu sína hjá Set vissi Sverrir að þar væri að finna mögulega lausn.

„Svo ég keypti vatnsrör frá Set og þau virkuðu svona líka vel,“ segir Sverrir Örn sem útbjó svo rörin þannig að þau hentuðu ostaframleiðslunni. Auk þess hafi rörin frá Set verið margfalt ódýrari en að kaupa tilbúin ostaform.

Osturinn kallast Búlands havarti og er fyrirmynd hans frá Danmörku þar sem hann kallast Fløde Havarti. Búlands havarti er 36% feitur ostur sem er hringlaga og sjálf-pressaður. Samskonar ostur hefur ekki verið fáanlegur á Íslandi og því fannst Sverri tilvalið að ráðast framleiðslu á honum þar sem danski osturinn var í miklu uppáhaldi hjá honum þegar hann bjó þar í landi.

Í frétt á heimasíðu Set er því fagnað að fólk finni óhefðbundnar leiðir til þess að nýta vörur fyrirtækisins til góða, ekki síst þegar þær eru notaðar í vöruþróun eins og þá sem Bio-bú vinnur að.