KS kaupir meirihluta í Mjólku

15 Oct 2009 21:56

Samkomulag er um að Kaupfélag Skagfirðinga kaupi í það minnsta 75 prósent hlutafjár í mjólkurvöruframleiðandanum Mjólku. Núverandi eigendur munu eiga áfram hlut í fyrirtækinu. Málið hefur verið sent til samkeppnisyfirvalda og niðurstöðu þeirra er vænst á næstu dögum.

Neðri Háls: Opinn dagur á laugardaginn 18 júlí.

15 Júl 2009 20:45

Neðri Háls fagnar 20 ára afmæli í lífrænni ræktun um þessar mundir, en  árið 1989 setti búið á markað fyrstu lífrænu gulræturnar. Ábúendur eru  Kristján Oddsson og Dóra Ruf.

Íslensk lífræn ræktun á asísku grænmeti

24 Jún 2009 11:27

„Asískt grænmeti hefur verið flutt inn frá Austurlöndum og selt í sérverslunum. Það hefur náð auknum vinsældum og fer neytendahópurinn sífellt stækkandi. Bæði er það fólk frá fjarlægum stöðum jarðar og fjölmennur hópur sem hefur áhuga á nýjungum í matargerð sem sækir í þetta hráefni.

ORF Líftækni fær leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu byggi

23 Des 2005 14:23

Umhverfisstofnun hefur samþykkt að veita ORF Líftækni hf. leyfi til útiræktunar í tilraunaskyni á erfðabreyttu byggi með ströngum skilyrðum og undir eftirliti Umhverfisstofnunar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Umhverfisstofnunarinnar í dag.