Lífrænn rjómaís á markað frá Biobú
Loksins er nú fáanlegur íslenskur lífrænn rjómaís. Biobú hefur hafið framleiðslu á lífrænum rjómaís og fyrstu ísboxinn fóru í verslanir í vikunni. Um er að ræða tvæ bragðtegundir, vanillu og jarðarberja, Ísinn er mjög þétttur í sér og gott er að ta
ka hann úr frysti nokkrum mínútum áður en hans er neytt. Ísinn er búinn að vera í þróun í nokkurn tíma en Biobú notar eingöngu eitt bindiefni (guar gum E412) í mjög litlu magni og engin litarefni, en þess má geta að í hefðbundnum ís eru um 10 E- efni og að auki litarefni. Ísinn fæst í eftirtöldum verslunum til að byrja með: Hagkaup, Yggdrasill, Melabúðin, Fjarðarkaupum, Maður lifandi og Græna hlekknum (Bændur í bænum).
www.facebook.com/pages/Biobu-ehf/349561612795
