Biobú setur á markað AB jógúrt

8 Feb 2010 13:37

Nú er komin á markað frá Biobú lífræn AB jógúrt og er hún þegar komin í allar verslanir á höfuðborgarsvæðinu. Ab jógúrtin ætti að vera kærkomin viðbót í lífrænu mjólkurvöruflóruna sem hefur verið einlit fram að þessu. A og B gerlarnir sem settir eru í þessa jógúrt stuðla að betri meltingu og vinna gegn óæskilegum örverum í meltingarveginum. AB jógúrtAB jógúrt lífræn  byggir auk þess upp mótstöðuafl líkamans og eflir ónæmiskerfið. Þess er vænst að neytendur eigi eftir að meta aðgang að þessum nýja lífræna valkosti.