Áburðarkalkið á Bíldudal í frekari þróun

17 Jan 2010 01:27

Aðal framleiðsluafurð Kalkþörungaverksmiðjunnar á Bíldudal er steinefnafóður. Um 14 þúsund tonn voru flutt út af því á síðasta ári, aðallega til kúabænda víða um heim. Þar hefur einnig verið framleitt áburðarkalk en mest af því er selt úr landi undir merkjum Íslenska kalkþörungafélagsins. en mest af því er selt úr landi undir merkjum Íslenska kalkþörungafélagsins. Áburðurinn samanstendur af hreinum kalkþörungum með kornastærð 1-3 millimetra sem hentar líka í áburðardreifara. Hafkalk ehf. sér um sölu á afurðum Íslenska kalkþörungafélagsins á innanlandsmarkaði og seldi talsvert af kalkáburði innanlands í fyrsta sinn á síðasta ári, bæði í smásölu og einnig í stærri pakkningum til bænda í lífrænni ræktun.

Guðmundur V. Magnússon, verksmiðjustjóri Íslenska kalkþörungafélagsins, segir að áburðarkalkið sé í frekari vöruþróun og nú sé verið að ljúka við að setja upp kornunarverksmiðju sem býr til kúlur úr kalkþörungadufti. „Þessi áburður leysist strax upp í jarðveginum og er því mun fljótvirkari heldur en sá gamli. Þá hentar hann líka í áburðardreifara. Kalkþörungarnir eru hrein náttúruafurð. Mest allt er flutt út og selt til bænda sem jarðvegsbætiefni. Þeir innihalda 30% kalk, 2% magnesíum og mikinn fjölda annarra steinefna úr hafinu. Þetta eru allt mikilvæg næringarefni fyrir gróðurinn sem og aðrar lífverur. Við leggjum áhersla á sölu til bænda í lífrænni ræktun en kaupendur eru einnig almennir bændur,“ segir Guðmundur.“

Myndin er frá Kalkþörungarverksmiðjunni á Bíldudal. Unnið er við pökku