"Bændur í Bænum"

Á morgun fimmtudaginn 17. desember opnar
Bændmarkaður með lífrænar afurðir að Nethyl 2c hjá Græna Hlekknum.
Í boði verða garðyrkjuafurðir eins og tómatar,
kartöflur, rófur, hnúðkál, krydd og fleirra sem
til er hverju sinni. Einnig verða mjólkurafurðir
frá Bióbú eins og jógúrt, skyr, rjómaostur,
Sorbit-ís, rjómaís og fleirra. Þá eru ýmsar
heimatilbúnar afurðir, svo sem chilepiparmauk,
gúrkur í kryddlegi, mjólkursýrðar gulrætur,
ávaxtasultur og kompott, þurrkaðir ávextir og
fleirra. Einnig eru innfluttir lífrænir ávextir
frá hinu ýmsu hornum veraldar. Villimey verður líka með sín galdrasmyrsl.
Helstu framleiðendur sem eru með á þessum árstíma
eru Garðyrkjustöðin Akur, Engi, Móðir Jörð, Villimey og Bióbú.
Markaðurinn er opin fyrir jól fimmtudag til
laugardags kl.12-18 og mánudag til miðvikudags kl.12-18.
Einnig verður opið milli jóla og nýárs mánudag til miðvikudags kl.12-18.
Boðið verður upp á ýmsan glaðning fyrir gesti og gangandi.