Góð, hrein og sanngjörn matvæli
Fyrsti alþjóðlegi Terra Madre dagurinn verður haldinn 10. desember til að fagna 20 ára afmæli Slow Food-samtakanna og vekja athygli á staðbundnum gæðum í matvælaframleiðslu.
Fyrsti alþjóðlegi Terra Madre dagurinn verður haldinn 10. desember til að fagna 20 ára afmæli Slow Food-samtakanna og vekja athygli á
staðbundnum gæðum í matvælaframleiðslu. Ætlunin er að vekja fólk til vitundar um matvæli sem eru góð, hrein og sanngjörn, en þessi einkunnarorð Slow Food vísa til þess að maturinn eigi að bragðast vel, að hann sé framleiddur af virðingu við náttúruna og af félagslegu réttlæti (að framleiðendur fái sanngjarnt verð fyrir vinnu sína). Haldið verður upp á daginn í 150 löndum, en skipuleggjendur eru 100.000 meðlimir í samtökunum sem mynda 1.300 deildir (Convivium) um allan heim, ásamt svokölluðu “Terra Madre” tengslaneti sem telur 2.000 manns, matreiðslumenn, kennara, námsmenn, sérfræðinga o.fl. sem koma að landbúnaði og matvælaframleiðslu með einhverjum hætti.
Terra Madre dagurinn verður eitt stærsta, samræmda, alþjóðlega átak sem staðið hefur verið fyrir til að hvetja fólk til að velja staðbundin gæðamatvæli umfram annað. Ætlunin er að vekja athygli á stöðu landbúnaðarins og rétti samfélaga til að viðhalda smáframleiðslu og fjölbreytni í matvælaframleiðslu, framleiðslu sem viðheldur menningu og er í sátt við umhverfið. Haldið verður upp á daginn með fjölbreyttum hætti; haldnir verða kvöldverðir, framleiðendur kynna afurðir sínar, í sumum löndum verða sýndar bíómyndir eða staðið fyrir öðrum listviðburðum sem tengjast mat. Á Íslandi munu veitingastaðirnir Dill, Friðrik V og La Primavera bjóða uppá sérstaka matseðla með úrvals íslenskum hráefnum í tilefni dagsins, auk þess sem verslanirnar Búrið í Nóatúni og Bændamarkaður Frú Laugu við Laugalæk stefna saman viðskiptavinum og bændum sem kynna munu afurðir sínar.
TERRA MADRE DAGURINN Á ÍSLANDI.
Verslanir í Reykjavík:
Búrið (Nóatúni 17): Hitta framleiðendurna hjá Eirnýju.
Jóhanna frá Háafelli mun kynna afurðir úr geitamjólk, Guðmundur frá Holtseli mun kynni ísframleiðslu sína sem hefur heillað 25000 manns í sumar – og í sameiningu munu þau bjóða geitajogúrtís, sem hefur aldrei verið gert á Íslandi (svo vitað sé).
Bændamarkaður Frú Lauga (v/Laugalæk): hitta framleiðendurna hjá Arnari og Rakel.
Frosti frá Sólheimum í Grímsnesi mun kynna lífrænar brauðvörur þaðan, og trillukarl frá Hornafirði mun kynna makrílafurðir.
Veitingahúsin í Reykjavík:
Dill Restaurant: sérmatseðill með jólablæbrigðum í tilefni dagsins með úrvals íslenskum hráefnum, Slow Food teymið Gunnar Karl og Ólafur Örn stjórna ferðinni.
La Primavera: sérmatseðill þar sem íslenska hráefnið er matreitt að hætti Slow Food Ítala eins og Leifi einum er lagið.
Veitingahúsin á landsbyggðinni:
Friðrík V (Akureyri): sérmatseðill í tilefni dagsins að hætti Slow Food matreiðslumanni Friðríki og sérdagskrá í Menntaskóla á Akureyri, sýning á hluta af Terra Madre myndinni sem var sýnd á RIFF í haust.
Slow Food Í Ríki Vatnajökuls (Höfn í Hornafirði): Móðir Jörð kvöldverður á Humarhöfn, matur úr héraði með hreindýraþema.
