Finnastaðir komnir með lífræna vottun
Finnastaðir í Eyjafirði fengu lífræna vottun þann 1 nóvember s.l. Finnastaðir í Eyjafirði fengu lífræna vottun þann 1 nóvember s.l. en þar er aðallega stunduð mjólkurframleiðsla. Einnig er á búinu framleidd egg. Búið er vel yfir meðallagi að stærð og framleiðir um 200 þús lítra af mjólk á ári. Biobú óskar ábúendum til hamingju með árangurinn og óskar þeim velfarnaðar við það ögrandi viðfangsefni að stunda lífræna ræktun. MS á Akureyri og MS í Reykjavík munu í sameiningu sj
á um að koma mjólkinni til Biobús sem mun sjá um að afsetja hana. Þetta mun bæta úr þeim skort sem verið hefur á lífrænni mjólk undanfain misseri og valdið hefur vöruskorti á vörum frá Biobú. Nú mun rætast úr því og einnig gefst tækifæri til að þróa nýjar vörutegundir frá Biobú sem ætti að vera fagnaðarefni fyrir neytendur lífrænna mjólkurvara, en þeim fer sífellt fjölgandi.
