Skortur á lífrænni mjólk
Undanfarnar vikur hefur verið skortur á lífrænni mjólk. þetta hefur gert það að verkum að ekki hefur verið hægt að uppfylla eftirspurn eftir
lífrænum mjólkurvörum frá Biobú. Hefur þetta leytt til skorts á sumum vöruflokkum og að skammta hefur þurft í búðir. Ástæðan fyrir skortinum tengist haustinu, en mjólkurframleiðslan á Neðra Hálsi og Búlandi hefur minnkað, eftir að beitartíma lauk og kýrnar teknar á hús, en þessi bú sjá Biobú fyrir allri þeirri mjólk sem Biobú notar. Þetta er árstíðabundirð vandamál sem tengist breytingu á fóðrun úr grasbeit í fóðrun með heyi. Væntingar eru um að mjólkurframleiðslan aukist aftur á næstu misserum. Þá er einnnig von á þriðja búinu sem skaffa mun lífræna mjólk, en það er Finnastaðir í Eyjafirði. Við munum segja meira frá því þegar að því kemur.
