Sorbet ís
Lífrænn sorbet ís
Biobú hefur sett á markað sorbet ís, en hann er gerður úr mysu, sem er jákvætt þar sem mysuprótein eru mjög góð til að viðhalda og efla vaxtaflóru líkamans, og hefur þannig eflandi og styrkjandi áhrif á vöðvakerfið. Af þeim ástæðum eru mysuprótein eftirsótt af vaxtarrækatarfólki. Ísinn inniheldur einnig hrásykur og ávaxtamassa. Sorbet ís er framleiddur í 4 tegundum þ.e kókos, jarðaberja, mangó og rabbabara sorbet. Sorbet ís er eftirsóttur af betri kokkum bæjarins, þar sem hann þykir góður sem milliréttur, en hann nautraliserar bragðið í munninum fyrir næsta rétt.
|
|
|
![]() |




