KS kaupir meirihluta í Mjólku
15 Oct 2009 21:56
Samkomulag er um að Kaupfélag Skagfirðinga kaupi í það minnsta 75 prósent hlutafjár í mjólkurvöruframleiðandanum Mjólku. Núverandi eigendur munu eiga áfram hlut í fyrirtækinu. Málið hefur verið sent til samkeppnisyfirvalda og niðurstöðu þeirra er vænst á næstu dögum. Gert er ráð fyrir að hluti af starfsemi Mjólku verði fluttur til Sauðárkróks. Kaupfélag Skagfirðinga á 7% hlut í Mjólkursamsölunni - samkeppnisfyrirtæki Mjólku.
