ORF Líftækni fær leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu byggi

23 Des 2005 14:23

Orf líftækniUmhverfisstofnun hefur samþykkt að veita ORF Líftækni hf. leyfi til útiræktunar í tilraunaskyni á erfðabreyttu byggi með ströngum skilyrðum og undir eftirliti Umhverfisstofnunar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Umhverfisstofnunarinnar í dag.

Þar segir ennfremur að ljóst sé að verulega skiptar skoðanir eru um hvort heimila eigi sleppingar erfðabreyttra lífvera á Íslandi. Samkvæmt gildandi lögum ber að meta hvert tilvik fyrir sig á grundvelli tiltekinna skilyrða. Helstu þættir sem Umhverfisstofnun leggur mat á eru hugsanleg áhrif á lífríki, afmörkun sleppingar og siðferðileg álitaefni. Ráðgjafanefnd um erfðabreyttar lífverur og Náttúrufræðistofnun Íslands eru lögbundnir umsagnaraðilar, meta umsóknina og skila áliti til Umhverfisstofnunar.

Í niðurstöðu Umhverfisstofnunar kemur fram að í mati á fyrirliggjandi gögnum komi fram að hverfandi líkur séu fyrir hendi á útbreiðslu hins erfðabreytta byggs út fyrir tilraunareit og á mögulegri víxlfrjóvgun erfðabreytta byggsins við annað bygg eða plöntur í nágrenni sleppistaðar. Jafnframt telur Umhverfisstofnun að hverfandi líkur séu á að þau græðisprótein sem fyrirhugað er að nota skv. framkominni umsókn muni valda neikvæðum áhrifum á lífríki á ræktunarstað eða nágrenni hans. Umhverfisstofnun telur einnig að aðgerðir til að tryggja afmörkun ræktunarreits sé fullnægjandi með þeim skilyrðum sem stofnunin setur og koma fram í niðurstöðum. Skilyrði leyfisins eru tíunduð í fréttatilkynningu á vef Umhverfisstofnunar.

Í hádegisfréttum RÚV var rætt við Björn Lárus Örvar, framkvæmdastjóra ORF Líftækni, þar sem fram kom að þetta væri tilraun sem gæti tekið nokkur ár og þeir muni ekki láta deigan síga þrátt fyrir þá andstöðu ákveðins hóps – við því hefði verið búist. Sagði hann að sáning hæfist sem fyrst en ekki væri hægt að búast við uppskeru í haust þar sem tíminn væri orðinn mjög naumur.