Lífræn mjólk

Lífræn mjólk frá Neðra Hálsi í Kjós

Uppistaðan í framleiðslu matvæla að Neðra Hálsi er mjólk. Framleiddir eru allt að 150.000 litrar af mjólk á ári. Þá fellur alltaf eitthvað til af nautakjöti af nautum sem alin eru til kjötframleiðslu. Öll framleiðslan er vottuð lífræn.

Gæðaeftirlit

Fyrsta flokks mjólk

Samkvæmt þeim stöðlum sem mjólkuriðnaðurinn hefur sett um gæði mjólkur, að þá flokkast mjólkin frá Neðra Hálsi að jafnaði sem fyrsta flokks mjólk. Þá skiptir miklu að um lífræna framleiðslu er að ræða, sem varðar miklu um hollustu vörunnar.Taflan hér að neðan sýnir þau efni sem mælt er fyrir hjá rannsóknarstofnun mjólkuriðnaðarins. Um er að ræða sýni sem mæla almenn gæði mjólkurinnar með tilliti til heilbriðgis mjólkurkúa og hreinlætis við mjaltir. Þá er efnainnihald mjólkurinar mælt eins sjá má ef taflan hér að neðan er skoðuð.

 Skýring Vika 1 Vika 2 Vika 3 Vika 4
 Sýnatökudagur var: 03  12  17  24 
 Fríar fitusýrur 1,010  0,850  0,980  1,220 
 Fituprósenta 4,030  3,990  3,990  4,230 
 Frostmark í gr. á Celsius -0,530  -0,525  -0,529  -0,529 
 Frumufjöldi í þús. pr. ml. 362,000  310,000  320,000  257,000 
 Fitusnautt þurrefni í prósent. 8,980  8,990  8,920  8,930 
 Líftala í þús pr ml 19,000  14,000  18,000  13,000 
 Geometrískt meðaltal frumur 287,000  289,000  292,000  289,000 
 Geometrískt meðaltal líftala 16,000  16,000  16,000  16,000 
 Kasein 2,700  2,760  2,690  2,710 
 Mjólkursykurprósenta 4,600  4,580  4,530  4,540 
 Leiðr. fituprósenta 4,030  3,990  3,990  4,230 
 Leiðr. frumufj. í þús. pr. ml. 362,000  310,000  320,000  257,000 
 Leiðr. próteinprósenta 3,460  3,490  3,470  3,470 
 Próteinprósenta 3,460  3,490  3,470  3,470 
 Úrefni í millimólum pr. ml. 8,990  8,220  6,090  6,940 
 

Sápu- og sótthreinsileifar

Lögð er mikil áhersla á að mjólkin sé laus við aðskotaefni eins og sápu eða sótthreinsileifar. Það er gert með því að skola vel mjaltabúnað og tank eftir hvern þvott með miklu af hreinu vatni.

Júgurgræðir

Nauðsynlegt er að nota einhverskonar smyrsl á spenana til að halda þeim mjúkum og verja fyrir óhreinindum og öðru. Mikið framboð er á hverskonar efnum í þeim tilgangi, og er það yfirleitt blanda af kemiskum efnum af einhverju tagi. Að Neðra Hálsi hefur undanfarin ár eingöngu verið notuð heimatilbúin smyrsl úr lífrænt ræktuðu hráefni. Grunnefnið er óbleikt bývax sem er blandað með ýmsum olíum úr t.d sólblómafræi, piparmintu, vallhumli og valurt ásamt ilmkjarnaolíum og getur samsetning veri breytileg.

Lyfjaleifar

Engin fúkkalyf eru notuð gegn júgurbólgu í kúm á Neðra Hálsi. Ef upp kemur júgurbólga í kúm eru einungis notuð náttúrleg efni en ekki kemisk eins og t.d.´ymsar tegundir af pensillíni. Notaður er safi úr Aloa Vera plöntum og hefur það gefið góðan árangur. Aloa Vera er einnig notað gegn súrdoða sem er algengt vandamál hjá mjólkurkúm. Sé notkun á fúkkalyfjum óhjákvæmileg t. d í tengslum við burð er útskolunartími fyrir sölu á mjólk úr meðhöndluðum kúm hafður helmingi lengri en í hefðbundinni framleiðslu.

Til að tryggja gott heilsufar, er kúnum einnig hleyft út að vetri til, en rannsóknir hafa sýnt að næg útivera og hreyfing eflir mótsöðuafl gegn sjúkdómum. Kýrnar á Neðra Hálsi fara að jafnaði út einu sinni í viku. Allt geldneyti hefur aðstöðu til að vera úti við eftir þörfum

Lífræn mjólk sett á markað

Lífræna mjólkin frá Neðra Hálsi var fyrst sett á markað 1998, en hún er gerilsneydd eins og önnur mjólk en ekki fitusprengd. Þetta er eina drykkjarmjólkin á markaði sem seld er ófitusprengd, en ekki hefur verið á markaði í marga áratugi ófitusprengd og lífræn mjólk. Það er Mjólkursamalan í Reykjavík sem sér um vinnslu, pökkun og dreyfingu á mjólkinni. Mjólkin er til sölu í öllum helstu stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðin.

Lífræn jógúrt frá Biobú

Biobú ehf er nýtt fyrirtæki sem er sérhæft til vinnslu á lífrænum mjólkurafurðum en það var stofnað í júlí 2002. Biobú hóf vinnslu og sölu á lífrænni jógúrt 3. júní 2003.Mjólkin sem notuð er í Biobú jógúrtina er frá Neðra-Hálsi en hún er gerilsneydd en ófitusprengd og er allt hráefni lífrænt. Engin hjálparefni eru notuð utan lífrænan hrásykur sem notaður er í ávaxtajógúrtina. Biobú jógúrtin fæst í fjörum tegundum þ.e. hrein, með jarðarberjum, músli og ávöxtum og mangó.

Umhverfisvænar umbúðir

Umbúðirnar utan um jógúrtina eru eins umhverfisvænar og kostur er. Ekkert ál er í þeim og plastnotkun í lágmarki. Til styrkingar dósunum er notuð pappaaskja sem flokka má með pappa og endurvinna.