Skógrækt

myndÍ lífrænni ræktun er mjög mælt með ræktun trjáa til skjóls og til að bæta veðurfar og auka fjölbreytni í náttúrunni. Tré auka líka vatnsforða og vassleiðni jarðvegs og binda og koma þannig í veg fyrir fok og að jarðvegur renni í burt. Tré binda einnig koltvísiring úr loftinu og breyta honum í mold.

Undanfarna áratugi hefur verið stunduð talsverð skógrækt að Neðra-Hálsi, og seinni árin aðallega skjólbeltarækt, og hefur árangur verið myndþokkalegur. Mjög er mælt með skjólbeltarækt í lífrænni ræktun og eru fyrir því margar ástæður. Skjólbelti auka meðal annars veðursæld og gefa þannig dýrum skjól, og auka uppskeru. Með því að taka land undir skjólbelti fá fuglarnir notalegt griðland, en þeir þurfa einnig pláss eins og við hin. Hægt er að líta á plássið sem fer undir skjólbeltin sem einskonar greiðslu á toll til náttúrunnar, í staðinn fyrir það land sem tekið er undir ræktun.

myndStundum er efnt til skógardags og er þá hóað í vini og vandamenn til aðstoðar við plöntun, grisjun og fleira er varðar trjáræktina. Það gefur tækifæri til að hittast og eiga góða stund saman í ilmandi náttúrunni. Myndin hér til hliðar er af einni slíkri hátíðarstund

 

Smíðaviður, trjákurl og eldiviður

myndSkógræktin gefur einnig af sér dýrmætt hráefni; trjákurl sem er nauðsynlegt hráefni í t.d.safnhaugagerð. Einnig nýtast sverustu greinarnar sem eldiviður í arin eða kamínur eða til tréskurðagerðar.