Aðbúnaður húsdýra

Kýr

myndÍ lífrænum landbúnaði er dýrum ætlaður betri aðbúnaður en almennar reglur segja til um. Það er gert til að dýrin geti hreyft sig meira og betur notið eðlislægrar hegðunar. Meginreglan er sú að allt búfé sem haft er í húsi hafi það frelsi og rými að það geti snúið sér auðveldlega í heilhring. Mjólkurkýr sem bundnar eru á bása allan veturinn skulu látnar út að vetrinum eins oft og kostur er og aðstæður leyfa. Á Neðra Hálsi eru kýrnar bundnar á básum, og eru þær settar út í það minnsta einu sinni í viku yfir vetrartíman en eru annars á beit úti að sumri. Kýrnar eru síðan teknar inn til mjalta kvölds og morgna.

Geldneyti

myndGeldneyti eru að jafnaði 30 - 40, og skiptast í kálfa sem eru frá 3ja mánaða gömlum upp í 15 mánaða og svo kvígur sem eru frá 15 mánaða og upp í 2ja til 3ja ára eða þar til þær fæða kálfa og verða að kúm. Sér útbúin aðstaða er fyrir kýr og kvígur sem eiga von á að eignast kálfa, svo kölluð burðarstía, en mikilvægt er að kýrnar hafi rúmt og gott pláss og næði til að fæða kálfinn. Eftir að kálfurinn fæðist fær hann að vera með móður næstu 5-6 daga, þar sem móðirin sér kálfinum fyrir mjólk.

Geldneyti eru í lausagöngu með aðgang að legubásum með mjúkri dýnu.Gólfið er steypt og er því haldið hreinu með sjálfvirku sköfukerfi. Öll geldneyti hafa aðstöðu til að njóta útiveru eftir þörfum, þar sem hver aldurshópur hefur aðgang að útigerði.