Lífrænt skyr í tveimur tegundum í verslanir

16 Sep 2010 (All day)

 

Biobú hóf nýverið að dreifa skyri í verslanir, um tvær tegundir er að ræða, hreint og með vanillubragði. Fyrstu viðtökur hafa verið mjög jákvæðar og fólk virðist almennt vera ánægt með skyrið.

Smá fróðleikur!
Skyr er ferskur súrostur sem framleiddur hefur verið á Íslandi frá örófi al...da. Það er framleitt úr undanrennu og eru mjólkurpróteinin hleypt Hreint lífrænt skyr og slifrænt vanilluskyrmeð gerjun. Skyr í einhverri mynd hefur vísast verið til á Íslandi frá landnámi.
Skyr er dæmi um þjóðlegan mat sem hefur náð að aðlagast nútímaþjóðfélagi með ágætum, en um leið hafa orðið breytingar á vörunni og aðferðum við framleiðslu hennar. Í stað hefðbundinnar skyrgerðar með pokasíun er skyr nú almennt framleitt með þrýstisíun.
Hjá Biobú er skyrið framleitt með gömlu aðferðinni, það er með pokasíun.