Neðri Háls. Sláttur hófst 5 júní.
Sláttur hófst að Neðra Hálsi á laugardag 5 júní s.l. . Spretta var vel í meðallagi og mjög sérstakt að komið skuli svo g
ott gras svo snemma. Undanfarin ár hefur sláttur byrjað í kringum 10 - 11 júní. Slegnir voru tæpir tveir hektarar sem gáfu 28 rúllur af söxuðu heyi. Vika er síðan gras á umræddum spildum fór að skríða, sem þíðir að gras var fullsprottið. Hér er um að ræða háliðagras sem er mjög fljótsprottið og uppskerumikið gras. Í raun hefði átt að slá þessi tún fyrir viku til tíu dögum síðan, en þar sem háliðagrasið er aðeins hluti af grasflórunni í spildunum var ákveði að bíða með það til þess að seinsprotara gras yrði uppskerumeira. Vel lítur út með sprettu í sumar og er reiknað með að áfram veði slegið á næstu dögum og vikum, og að fyrri slætti verði lokið í júní.
