Biobú sjö ár á markaði

3 Jún 2010 08:55

Þennan dag, 3. júní árið 2003 fóru fyrstu vörur Biobú á markað. Um var að ræða þrjár braðgtegundir af jógúrt, hrein, jarðarberja og múslí. Í dag framleiðir Biobú margar tegundir af jógúrt, eins og mangó og kókos sem eru vinsælustu vörur Biobú. Biobú hefur einnig verið að föndra við fleiri vörur eins og skyr... og ís en í frekar takmörkuðu magni.Sex saman

Biobú er eina lífræna mjólkurbúið sem er starfandi á Íslandi og hefur vaxið jafnt og örugglega á liðnum árum þökk sé tryggum neytendum. Nú eru þrír mjólkurframleiðendur sem leggja inn mjólk hjá Biobú og eru nóg framboð af lífrænni mjólk um þessar mundir. Á næstu vikum er því von á fleiri spennandi vörum frá Biobú, t.d. skyr í 170g dósum og mangóís sem er alveg sérstaklega ljúffengur.

Starfmenn Biobú héldu uppá daginn með því að gæða sér á ljúffengri súkkulaðiköku úr Mosfellsbakarí.