Fituskert mjólk er fitandi; en ófituskert er það ekki

17 Maí 2010 19:02

Rannsókn þar sem 12,829 börn á aldrinum 9 og 14 ára tóku þátt leiddi í ljós samband offitu og þess að drekka fituskertar mjólkurafurðir, en neysla á heilmjólkurafurðum tengdist ekki offitu. Frá þessu var sagt í tímaritinu Archives of Pediatrics and Adolescent Medicine.

Bændur hafa vitað það í áratugi að það að fóðra svín með heilmjólkurafurðum gerir kjötið mjúkt og fitusnauðara, en svín sem fóðruð eru með fituskertum mjólkurafuðum fitna auðveldlega. Núna höfum við vísindalega staðfestinu á því að þetta á einnig við um mannfólkið. Gríðarleg aukning á offtituvandamálum hjá börnum í landinu ( í þessu tilfelli Bandaríkin. innsk þýð.) hefur komið til á sama tíma og foreldrum hefur verið ráðlagt að gefa börnum fituskertar mjólkurafuðir. Þá er skólamötuneytum ráðlagt að bjóða fituskertar mjólkurafurðir í staðinn fyrir heilmjólkurafurðir. Nýjar næringarleiðbeiningar fyrir börn útgefnar í júní s.l. og undirskrifaðar og samþykktar af forseta landsins, er enginn stafur þess efnis að bjóða skuli upp á nýmjólk (heilmjólk) í skólamötuneytum þar sem ríkið tekur þátt í kostnaði.

Mjólkurfita er einstakur næringargjafi í mörgu tilliti sem hjálpar t.d.skjaldkirtli að vinna eðlilega og einnig hjálpar mjólkurfita líkamanum að byggja upp vöðva frekar fituvefi. Þetta á sérstaklega við um mjólk frá kúm sem fóðraðar eru á grasi í stað kjarnfóðurs.

vefur The Weston A. Price Foundation sagði frá

http://www.westonaprice.org/federalupdate/aa2005/infoalert_070905.html

Úr gömlu fréttasafni á Biobú .is