Félagsfræðileg vandamál

31 Mar 2010 16:51

Undanfarnar vikur hafa starfsmenn í framleiðsludeild Biobú átt í samskiptavandamálum við jógúrtgerlana. Gerlarnir eru með sjálfstæða hugsun og hafa ekki viljað sýra jógúrtina eins og venjulega. Undan farnar vikur hefur hún verið frekar misjöfn, þunn, smá yrjótt og stundum of súr, við hjá Biobú biðjumst velvirðingar á því. Framleiðsludeildin telur sig vera búin að ná samkomulagi við gerlana og ætti nýjasta jógúrtin að vera eins og hún á að vera, hæfilega þykk og ljúffeng.
Munið að borða hollt yfir páskana, hefja daginn á Biobú jógúrt og fá sér svo gómsætan jarðarberjaís í eftirrétt eftir kvöldmatinn, eða bara hvenær sem er.