Vísir Fréttir
Árásum á Homs haldið áfram
Stjórnarherinn í Sýrlandi hefur í dag haldið áfram árásum á borgina Homs og fleiri borgir sem hafa verið vígi mótmælenda í landinu síðustu mánuði.
Iceland Express í samstarf við Hinsegin daga
Iceland Express og Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride undirrituðu í dag samstarfssamning sem felur í sér stuðning Iceland Express við Hinsegin daga fyrir hátíð þeirra í ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Svartur á leik - eins og snákur á amfetamíni
Kvikmyndin Svartur á leik fær þokkalega dóma hjá kvikmyndasíðunni The Twitchfilm þar sem Jóhannesi Hauki Jóhannessyni er hrósa í hástert og myndin sögð frábær skemmtun. Myndin keppti á IFFR kvikmyndahátíðinni en fékk engin verðlaun.
Roma tryggir sér þjónustu De Rossi til fimm ára
Miðjumaðurinn Daniel De Rossi hefur samþykkt nýjan fimm ára samning við AS Roma á Ítalíu. Samingur Ítalans átti að renna út í vor.
Söng Sprengisand fyrir tökuliðið
"Það er búið að vera virkilega gaman að vera hérna,“ segir fyrirsætan Anna Þóra Alfreðsdóttir sem var að ljúka við að taka upp stóra auglýsingarherferð í Toronto í Kanada.
Breivik segir gjörðir sínar ekki vera refsiverðar
Anders Behring Breivik, fjöldamorðinginn í Útey og Osló, neitar því að gjörðir hans séu refisverðar. Þetta sagði hann þegar að hann mætti fyrir rétt í Osló í dag. Hann var færður í dómhúsið í handjárnum í fylgd tveggja lögreglumanna.
Ingvar Helgason horfinn
Erna Gísladóttir og Jón Þór Gunnarsson, sem um síðustu áramót tóku við rekstri bílaumboðsins Ingvars Helgasonar og B&L hafa frá og með deginum í dag breytt nafni félagsins í BL. Ingvar Helgason er því horfinn úr nafninu.
Högnuðust um 472 milljarða á móti 480 milljarða tapi
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að þrátt fyrir um 480 milljarða tap lífeyrissjóðanna vegna hrunsins þá sé útkoman ekki svo slæm þegar hagnaður sjóðanna af öðrum eignum sé tekinn með í reikninginn, en hann var 472 milljarðar.
Segir fráleitt að AGS hafi lagt til lokun menningarstofnana
Franek Rozwadowski fastafulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi vísar því alfarið á bug að sjóðurinn hafi á sínum tíma gert tillögu um að loka ríkisreknum menningarstofnunum í sparnaðarskyni.
Lopez án andlitsfarða
Á meðfylgjandi myndum má sjá Jennifer Lopez, 42 ára, á ströndinni í Santa Monica um helgina. Söngkonan er ávallt glæsileg hvort sem hún er með andlitsfarða eða ekki.
Hræðileg markvarðarmistök komu Gana í undanúrslitin
Gana vann 2-1 sigur á Túnis í framlengdum leik í 8-liða úrslitum Afríkukeppninnar í gær. Þá duttu heimamenn frá Gabon úr leik gegn Malí í vítaspyrnukeppni að loknu 1-1 jafntefli.
Réttað yfir fyrrverandi garðyrkjustjóra Orkuveitunnar
Aðalmeðferð stendur nú yfir í máli Kristins H. Þorsteinssonar, fyrrverandi garðyrkjustjóra hjá Orkuveitu Reykjavíkur, sem var ákærður af sérstökum saksóknara fyrir fjárdrátt.
Eyjafjallajökull fyrir Evrópudómstólinn
Evrópudómstóllinn í Lúxemborg mun í þessari viku fella úrskurð í mikilvægu máli sem snýst um viðskiptavin Ryanair flugfélagsins og bætur henni til handa.
Allt á fullu í Indónesíu
Hagvöxtur í Indónesíu mældist 6,5 prósent samkvæmt tölum sem hagstofa landsins birti í morgun. Þetta er mesti hagvöxtur í landinu síðan 1996, eða í fimmtán ár, að því er segir í frétt á vef breska ríkisútvarpsins BBC.
Svaf fyrir framan Ráðhúsið í Þorlákshöfn - vildi spara pening
Lögreglan á Selfossi sinnti heldur sérkennilegu útkalli í nótt. Þeim barst tilkynning um mann með svefnpoka sem væri að leggja sig til við Ráðhúsið í Þorlákshöfn.
Þyrlan farin í loftið - veður frekar slæmt
Þyrla Landhelgisgæslunnar er farinn í loftið til þess að sækja breskan ferðmann sem slasaðist á göngu sinni frá Laugafelli suður í Nýjadal eða Sprengisandsleið eins og gönguleiðin er að jafnan kölluð.
Stanley kom sterkur til baka og sigraði í Phoenix
Kyle Stanley sigraði á Farmers Insurance meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi sem lauk í gær. Þetta er fyrsti sigur Stanley á sterkustu atvinnumótaröð heims en hann er 24 ára gamall Bandaríkjamaður.
Elísabet hefur verið sextíu ár í hásætinu
Sextíu ár eru liðin í dag frá því Elísabet Englandsdrottning tók við bresku krúnunni við andlát föður hennar. Í tilefni dagsins sendi hún frá sér yfirlýsingu þar sem hún segist vilja þjóna þjóð sinni áfram.
Áfram dauft yfir fasteignamarkaðinum í borginni
Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 70. Þetta eru töluvert færri samningar en nemur meðaltalinu síðustu þrjá mánuði sem er 90 samningar á viku.
Gylfi Þór og Kristinn Friðriksson í boltaspjallinu á X-inu 977
Valtýr Björn Valtýsson verður með boltaþáttinn á útvarpsstöðinni X-inu 97,7 á milli 11-12 í dag. Valtýr ræðir m.a. við Kristinn Friðriksson um undanúrslitaleikina í Poweradebikarkeppni karla sem fram fóru í gær.
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- …
- næsta síða
- síðasta síða

